28.02.1933
Efri deild: 12. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 618 í C-deild Alþingistíðinda. (4803)

45. mál, framfærslu

Flm. (Jón Baldvinsson):

Ég þarf ekki annað viðvíkjandi þessu frv. en að vísa til þess, sem sagt var um það mál í fyrra. Það komst gegnum tvær umr., en féll svo við 3. umr. með jöfnum atkv. Það var gerð ýtarleg grein fyrir málinu í fyrra, en til þess að gefa mönnum kost á að kynna sér efni þess, þá hefi ég tekið upp aths., sem fylgdu frv. Ég vil ekki halda uppi umr. að þessu sinni, en óska, að frv. verði vísað til allshn. til athugunar.