01.03.1933
Efri deild: 13. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 631 í C-deild Alþingistíðinda. (4819)
47. mál, sjórnarskrárbreytingu
Flm. (Jón Baldvinsson):
Það er rétt hjá hv. 3. landsk., að ég mun hafa látið orð falla um það, að ég byggist ekki við, að frv. næði fram að ganga á þessu þingi, eins mikil og andstaðan er gegn þessu í Framsfl. Þar sem Sjálfstæðisfl. fellst ekki heldur á þau aðalatriði, sem frv. fer fram á, þá er það auðvitað, að við 4 alþm. Alþfl. getum ekki komið þessu máli fram gegn vilja hinna.
Ég er ekki sammála hv. þm., um það, að þetta mál hafi gott af því að bíða. Ég held, að allir hafi gott af því, að þetta mál sé leyst tafarlaust. Þeir landsmenn, sem eru órétti beittir með núv. kosningalögum og kjördæmaskipun, álíta áreiðanlega ekki, að þetta mál hafi gott af því að bíða. Meiri hl. landsmanna óskar eftir, að þetta mál komist í framkvæmd heldur í dag en á morgun.
Mér þykir afarleitt, að einn af helztu stuðningsmönnum samsteypustj. og maður, sem er handgenginn hæstv. forsrh., skuli láta í ljós vafa um það, að málið nái fram að ganga á þessu þingi. Mér finnst það ekki spá neinu góðu um það, að stj. geti komið fram frv. til stjórnarskipunarlaga, sem hún nú hefir borið fram og ætla má, að hún vilji vinna að, eftir yfirlýsingu hæstv. forsrh.
Hitt er ekki rétt hjá hv. 3. landsk., að ég hafi sagt, að það væru önnur verkefni, sem meira lægi á að afgreiða en þetta. Ég talaði um önnur verkefni, sem mikil þörf væri að afgreiða, eins og t. d. kreppumálin. Ef það er nauðsyn, að þau verði afgr., þá er engu minni nauðsyn að afgreiða stjskrmálið. Það er einn liðurinn í kreppuráðstöfununum, að veita öllum landsmönnum jafnan rétt til þess að leggja atkv. sitt í vogarskálarnar um það, hvernig með þessi mál skuli fara. Það veit hv. d., að fram úr öllum okkar fjárhagsörðugleikum verður ekki ráðið á einu þingi. Þá er það réttara, að allir landsmenn fái jafnan rétt til þess að gera till. til úrlausnar á þeim málum. Þess vegna álít ég, að þetta mál hafi engan veginn gott af því að bíða, og að það séu ekki önnur verkefni, sem meiri þörf sé á að afgreiða en þetta.