06.03.1933
Efri deild: 17. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 655 í C-deild Alþingistíðinda. (4860)

62. mál, niðurjöfnunarnefnd í Reykjavík

Jón Baldvinsson:

Ég ætla aðeins að lýsa yfir því, að ég get ekki fylgt þessu frv. nú þegar við 1. umr. og mun greiða atkv. á móti því. Mér þykir rétt, að það fyrirkomulag, sem nú hefir staðið um nokkurt skeið, haldi áfram og að skattstjórinn, sem nú hefir verið form. n. og fastur maður í n., sé látinn starfa áfram svo sem verið hefir. Ég álít ekki þörf á að gera frekari grein fyrir þessu að svo stöddu.