21.03.1933
Efri deild: 30. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 683 í B-deild Alþingistíðinda. (509)

4. mál, bifreiðaskatt og fl.

Jón Jónsson:

Ég vildi beina því til hæstv. forseta, hvort hann gæti ekki fallizt á að taka málið út af dagskrá að þessu sinni. Ég hafði hugsað mér að bera fram brtt. við frv., og hefi ég aflað mér upplýsinga í þessu skyni, sem mér þó hefir ekki unnizt tími til að vinna úr enn, enda bárust mér þessi plögg fyrst nú á fundinum.