20.03.1933
Efri deild: 29. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 729 í B-deild Alþingistíðinda. (581)
18. mál, ljósmæðralög
Halldór Steinsson:
Ég er hv. 4. landsk. samdóma um það, að ef öll launin eru greidd úr ríkissjóði, þá á Alþingi að ráða eftirlaununum, en ekki sýslusjóðir. En að öðru leyti er þessi till. varhugaverð. Ég skal játa, að það er full þörf að létta undir með sýslusjóðum. En hræddur er ég um það, að ef farið er inn á þessa braut, þá muni það draga dilk á eftir sér. Er ekkert líklegra en að kennarastéttin komi á eftir, en hún tekur nú laun sín bæði úr ríkissjóði og sýslusjóðum. Myndi ríkissjóð muna um að verða að taka þann bagga líka. Álít ég þetta mjög hættulega braut, eins og nú er komið hag ríkissjóðs.
Ég get þess, að ég get verið samþykkur till. á þskj. 200. Þegar laun ljósmæðra voru ákveðin fyrir skömmu, þá voru þau að mínu áliti of lág, og þó að þessi litla breyt., sem till. fer fram á, væri gerð, þá tel ég þau sízt of há. Get ég því greitt henni atkv. mitt.