20.03.1933
Neðri deild: 31. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 741 í B-deild Alþingistíðinda. (607)

30. mál, útflutningur hrossa

Atvmrh. (Þorsteinn Briem):

Þetta frv. hefir tekið breyt. í hv. Ed., og er hún sú, að heimildin, sem atvmrh. átti skv. frv. að hafa til þess að leyfa útflutning hrossa eftir 15. okt., hefir verið takmörkuð þannig, að heimild þessi nær nú aðeins til ársloka 1935. Get ég eftir atvikum mælt með því, að frv. svo breytt gangi fram.