20.03.1933
Neðri deild: 31. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 741 í B-deild Alþingistíðinda. (608)

30. mál, útflutningur hrossa

Frsm. (Steingrímur Steinþórsson):

Ég vildi aðeins fyrir n. hönd mælast til þess, að frv. yrði tekið út af dagskrá nú, af því að landbúnaðarnefnd hefir ekkert athugað það, eða öllu heldur þá breyt., sem frv. hefir tekið í Ed., en ég vildi hinsvegar, að landbn. fengi aðstöðu til þess að athuga málið áður en það yrði afgr.