15.03.1933
Neðri deild: 25. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 758 í B-deild Alþingistíðinda. (645)
26. mál, jarðrask við sjó í kaupstöðum, kauptúnum og sjávarþorpum
Sveinn Ólafsson:
Ég álít þetta frv. í senn lítilvægt og þarflítið. Það mun yfirleitt fremur sjaldgæft, að grjót- eða malarnám valdi landbroti, þótt það að vísu geti komið fyrir. Þar sem svo hagar til, mun og yfirleitt vera til samþykktarákvæði til að varna slíkri hættu. Engu að síður álít ég þó rétt að gjalda varhuga við þessu og setja fyrirmæli til að tryggja, að varlega sé farið, þar sem hætta getur verið í þessum efnum.
Að því er frv. þetta snertir, þá þykja mér fyrirmæli þess of flókin og torveld í framkvæmd til þess að því verði vel tekið og ákvæðum þess fylgt af fúsum vilja. Skal ég að vísu ekki orðlengja frekar um það atriði, en lýsa áliti mínu á till. hv. þm. Borgf. Ég tel, að brtt. hv. þm. á þskj. 124 séu réttmætar og gangi í rétta átt. Þær gera þetta viðhlítanlegra en það verður eftir ákvæðum frv. Mér virðist ófært að leggja þá kvöð á menn þá alla, sem þurfa á efnisnámi að halda, þar sem ekki er bersýnileg hætta á landbroti, að þurfa að sækja um leyfi til slíks svo langa og torsótta leið og frv. ákveður, en nægilega tryggt, að hlutaðeigandi sveitarstjórnarvöld veiti leyfi eða geri samþykktir í þessu efni, og verði þetta undir þau borið, eins og ráðgert er í brtt. hv. þm. Borgf. Er og enginn vafi á því, að staðkunnugir menn geta sagt um það með meiri vissu en ókunnugur sérfræðingur, hvort gerlegt sé að veita efnistökuleyfi eða ekki, og mun ég af þeim ástæðum fylgja fyrri brtt. hv. þm. Borgf. Að því er síðari brtt. hv. þm. snertir, sem mælir svo fyrir, að vitamálastjóri skuli láta gera skrá um þau landsvæði, þar sem sérstök hætta getur stafað af efnisnámi við sjó, þá finnst mér hún óþörf, enda mundi hún fyrirsjáanlega hafa mikinn kostnað í för með sér, sem ekki er nauðsynlegur, því að ég álít, að staðkunnugir menn geti í öllum tilfellum skorið úr þessum málum, engu síður en sérfræðingar, sem jafnvel aldrei hafa á staðinn komið. Ég mun því ekki fylgja síðari brtt. hv. þm. Borgf. Annars vil ég að lokum segja það, að ég teldi engan skaða skeðan, þótt frv. yrði ekki samþ. eða sofnaði.