06.03.1933
Neðri deild: 17. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 772 í B-deild Alþingistíðinda. (685)
19. mál, sjúkrahús og fl.
Frsm. (Bergur Jónsson):
Allshn. leggur til, að þetta frv. verði samþ. að mestu óbreytt. Frv. er um efni, sem engin ákvæði hafa verið í löggjöfinni um hingað til. Engar reglur hafa verið til um eftirlit með heilbrigðisstofnunum, en öllum mun koma saman um, að full þörf er á slíku eftirliti af hálfu þess opinbera, sérstaklega þar sem þessar stofnanir eru reknar fyrir ríkisfé.
N. flytur tvær brtt. Sú fyrri er viðbót við 8. gr. frv. og fer fram á það, að ekki megi veðsetja sjúkrahús eða aðrar heilbrigðisstofnanir, sem reknar eru með styrk úr ríkissjóði, nema fyrir þeim skuldum, er á stofnuninni sjálfri hvíla. Hæstv. dómsmrh. hefir borið fram brtt. við þessa brtt. n., þess efnis, að bannið nái til allra þeirra heilbrigðisstofnana, sem ríkissjóður hefir lagt fé fram til að reisa, og ekki megi veðsetja þær fyrir t. d. rekstrarkostnaði. Ég býst við, að n. geti fallizt á þessa brtt., því að till. hennar var hugsuð þannig, að hún hindraði veðsetningu heilbrigðisstofnana fyrir rekstrarkostnaði.
Síðari brtt. er hegningarákvæði, ef út af þessum l. er brugðið. N. tók eftir því, að slík ákvæði vantaði í frv., og bætti þeim því inn í.