23.03.1933
Neðri deild: 34. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 834 í B-deild Alþingistíðinda. (803)

21. mál, byggingarsamvinnufélög

Atvmrh. (Þorsteinn Briem):

Ég vil þakka hv. allshn. fyrir, að hún hefir tekið þetta atriði til athugunar og komið fram með þessa till. Ég tel hana til mikilla bóta og nauðsynlega til tryggingar því, að ekki verði veitt ríkisábyrgð fyrir íbúðum, sem fara fram úr því, sem talizt geta hæfilegar meðalíbúðir. Ég get líka verið samþykkur till. hv. þm. Str. um hámark að því er verðið snertir. Ég tel þetta hvorttveggja til tryggingar því, að 1. verði ekki misnotuð. Leyfi ég mér að mæla með því, að frv. verði samþ. með þessum breytingum.