04.05.1933
Neðri deild: 64. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 849 í B-deild Alþingistíðinda. (857)

25. mál, stjórn vitamála og um vitabyggingar

Haraldur Guðmundsson:

Ég er sammála hæstv. ráðh. um, að ekki sé hægt að skylda bæjarstj. til þess að byggja vitann upp, og þess vegna er ég líka hræddur um, að hann falli alveg niður, ef ekki verður farið með hann á sama hátt og aðra vita. Ég held, að hér sé ekki um neina stóra fjárhæð að ræða og er ekki viss um, að það þurfi að byggja hann upp alveg að nýju.