29.11.1933
Efri deild: 22. fundur, 47. löggjafarþing.
Sjá dálk 65 í D-deild Alþingistíðinda. (1140)
75. mál, sala innanlands á landbúnaðarafurðum
Jón Baldvinsson:
Ég er nú ánægður með ræðu hv. 3. þm. Reykv., enda þótt hann hafi lýst yfir því, að hann hafi ekki skilið það, sem ég sagði. Í seinni ræðu sinni gekk hann inn á það, að dreifingarkostnaðinum ætti að bæta við framleiðsluverðið, og er hann þannig búinn að samþ. það, er ég hélt fram.
Hann minntist líka á annað atriði, sem við höfum ekki rætt áður, sem sé tilbúning vara, sem ekki er hægt að selja. Samkv. kenningu jafnaðarmanna á ekki að búa til vörur, sem ekki er hægt að selja. Framleiðsluna á að miða við þarfir þjóðarinnar. Ef hv. þm. vildi taka nærliggjandi dæmi um framleiðslu, sem væri óþörf, þá mætti segja, að það væri offramleiðsla, ef hann væri búinn að útskrifa fleiri presta en þörf er á.
Ég mun greiða atkv. með till. hv. 4. landsk., en að öðru leyti mun ég halda mér við brtt. mína við till. aðalflm. á þskj. 156. Fyndist mér það illa farið, ef ganga ætti framhjá neytendum, þegar um það er að ræða að skipuleggja afurðasölu innanlands. Er því óviturlegt ráð hv. 1. landsk., að fella niður ákvæðin um, að leita beri til þeirra stofnana, sem veitt gætu upplýsingar í þessu efni, og aðila, sem hafa áhrif á þessi mál.