08.12.1933
Sameinað þing: 13. fundur, 47. löggjafarþing.
Sjá dálk 547 í D-deild Alþingistíðinda. (1489)

84. mál, áfengismálið

Forseti (JBald):

Ég mótmæli því harðlega, að ég hafi farið óþinglega með þetta mál. Ég fór fram á að fá að bera till. upp eins og venja er til, þannig að ef hún yrði samþ., þá yrði sá venjulegi skilningur lagður í þá atkvgr. Fyrst hreyfði enginn mótmælum, en úr því þetta er gert að svo miklu kappsmáli, þá mun ég bera till. upp með því harðræði, að ef hún nær samþykki, þá verði umr. skornar niður þegar í stað.