08.12.1933
Sameinað þing: 13. fundur, 47. löggjafarþing.
Sjá dálk 564 í D-deild Alþingistíðinda. (1505)

84. mál, áfengismálið

Vilmundur Jónsson:

Ég vildi beina því til hæstv. forseta, að þessi brtt., sem kölluð er, við dagskrártill. mína er gersamlega sjálfstæð dagskrártill., og ég vildi fara fram á, að hann úrskurði, að svo væri, og að till. væru bornar upp sem sjálfstæðar till. Mína till. á þá að bera upp á undan, með því að hún er fyrr borin fram.