08.12.1933
Sameinað þing: 13. fundur, 47. löggjafarþing.
Sjá dálk 565 í D-deild Alþingistíðinda. (1507)

84. mál, áfengismálið

Jakob Möller:

Hv. þm. N.-Ísf. heldur, að till. mín sé sjálfstæð dagskrártill. En ég held því fram, að hún sé rétt borin fram sem brtt., þ. e. a. s. Ég bætti í hana innskoti á þá leið, að þingið telji ekki fært að breyta gildandi l. með bráðabirgðalögum, og er það í raun og veru sami rökstuðningur og er fyrir till. hv. þm. N.-Ísf. Að öðru leyti kemur fram skýrar afstaða þingsins til málsins, og ég tel þess vegna fullkomlega rétt, að hún sé borin fram sem brtt.