08.12.1933
Sameinað þing: 13. fundur, 47. löggjafarþing.
Sjá dálk 567 í D-deild Alþingistíðinda. (1519)

84. mál, áfengismálið

Jóhann Jósefsson:

Ég vil leyfa mér að spyrja hæstv. forseta, hvenær atkvgr. eigi að fara fram, því að ég vildi fá yfirlýsingu frá hæstv. forseta, sem tryggði það, að þingið yrði að láta uppi skoðun sína og vilja gagnvart þeirri till., sem hér liggur fyrir.