18.11.1933
Efri deild: 13. fundur, 47. löggjafarþing.
Sjá dálk 191 í D-deild Alþingistíðinda. (1539)
35. mál, sundhöll í Reykjavík
Frsm. (Jón Baldvinsson):
N. hefir gert grein fyrir áliti sínu á málinu á þskj. 106 og breyt. þeirri, er hún ber fram við þáltill. Í fjárl. er styrkur til byggingar sundlauga miðaður við það, að ríkissjóður leggi fram helming kostnaðar, og þó þetta heiti sundhöll í Rvík, þá er hún þó hliðstæð við sundlaugarnar úti um héruðin, nema hvað hún mun koma fleirum að gagni hér. Því er það, að n. fer fram á, að framlagið til sundhallarinnar í Rvík verði 2/5 alls kostnaðar, þegar byggingin er upp komin, og af því greiðist 100 þús. kr. á árinu 1934, en síðar skuli greiða til viðbótar það, sem á vantar til þess að ríkissjóðsframlagið samsvari þessum hluta kostnaðarins, eigi síðar en árið eftir að verkinu er lokið.
Í frv. til l. frá 1928 um sundhöll í Rvík, sem borið var fram á Alþ. og þá samþ., var eiginlega gert ráð fyrir því, að kostnaðurinn yrði 200 þús. kr. Það er að vísu aður en nokkrar áætlanir lágu fyrir og því hefir ekki verið ákveðið hærra framlag úr ríkissjóði en 100 þús. kr. það er því sýnilegt, að Rvík hefir átt að njóta sömu hlunninda eins og önnur héruð. En vegna þess að fjárhæðin verður svo þá í þetta mannvirki, hefir n. komið sér saman um að leggja til, að framlagið úr ríkjssjóði verði 2/5 alls kostnaðar. Þetta er því sjálfsagðara, sem bæjarstj. er með l. frá 1928 lögð sú skylda á hendur að byggja sundlaug eftir þeim teikningum, sem ríkisstj. hefir samþ. Ég geri ráð fyrir, að ríkisstj. hafi samþ. þessa byggingu sundhallarinnar. Það er því ríkisstj. sjálf, sem hefir ráðið miklu um það; að sundhöllin verður svona stórt og dýrt fyrirtæki, auk þess sem ég ætla, að ríkisstj. hafi haft hönd í bagga með undirbúning málsins, jafnvel lagt til mann til þess að gera áætlanir.
Það hér því allt að sama brunni um það, að í l. eru fyrirheit um framlag helmings kostnaðar. En n. fer þó ekki lengra en að leggja til, að ríkissjóður skuli greiða 2/5 hluta byggingarkostnaðar.
Í sjálfri till. á þskj. 45 er gert ráð fyrir því, að sundhöllin verði nothæf fyrir almenning eigi síðar en 1. okt. næstk. þessu hefir n. breytt þannig, að þetta sé ekki bundið við svo þröngt tímatakmark, því þá gæti farið á svipaðan hátt og með l. frá 1928, að stj. gat ekki séð sér fært að greiða framlagið, sem þá var miðað við, að sundhöllin væri komin upp 1930. Þetta rýmkar n. í till. sinni á þskj. 106 og væntir þess, að d. geti fallizt á þá brtt.