08.12.1933
Neðri deild: 29. fundur, 47. löggjafarþing.
Sjá dálk 610 í D-deild Alþingistíðinda. (1640)

55. mál, meðgjöf með fávitum

Jóhann Jósefsson:

Ég er á sama máli og hv. þm. Str. um það, að fari málið nú í n., nær það ekki fram að ganga á þessu þingi. Hinsvegar er hér um svofellt mál að ræða, að full þörf er á því sé sinnt. Ég tek því eindregið undir till. hv. þm. Str. um það, að málið fái að ganga nefndarlaust áfram.