09.12.1933
Neðri deild: 31. fundur, 47. löggjafarþing.
Sjá dálk 613 í D-deild Alþingistíðinda. (1652)

55. mál, meðgjöf með fávitum

Forseti (JörB):

Það er fjarri því, að ég þykist geta fundið að því, að hv. fjvn. hefir ekki formlega tekið mál þetta fyrir. Því var vísað til n. í gær. Hinsvegar vildi ég gera mína vísu með því að setja málið á dagskrá, ef vera kynni, að hv. n. hefði getað afgr. málið, svo það væri ekki mér að kenna, ef það dagaði uppi.