02.12.1933
Neðri deild: 24. fundur, 47. löggjafarþing.
Sjá dálk 619 í D-deild Alþingistíðinda. (1721)
85. mál, samvinnufélag Flateyjar
Flm. (Bergur Jónsson) [óyfirl.]:
Eins og sest á grg. þáltill., var Samvinnufélag Flateyjar stofnað árið 1932. Var svo þar sem víðar, að nauðsyn rak á eftir slíkri félagsstofnun, enda hafði aðalatvinnurekandinn í Flatey orðið gjaldþrota 1926, og hafði það í för með sér mikið peningalegt tap fyrir almenning í Eyjahreppi, auk þess sem atvinna stöðvaðist að miklu leyti. Var því mikil þörf á að auka atvinnu þorpsbúa bæði við fiskveiðar og fiskverkun, og í fátækt sinni lögðu þeir fram fé til að stofna samvinnufélag í þessu skyni. Félagið keypti skip, sem það hefir haldið úti á handfæraveiðum tvö undanfarin sumur. Var ekki sótt um neinn styrk til Alþingis til þessa. Tilgangur félagsins er einkum tvennskonar: að koma í veg fyrir, að fólk þurfi að flýja úr þorpinu um aðalbjargræðistímann vegna atvinnuleysis, og auk þess að auka peningaumferð í þorpinu, en þar hefir verzlun verið nær eingöngu vöruskiptaverzlun. Þessum tilgangi hefir felagið reynt að ná eftir megni, enda þótt stofnfjárleysi hafi háð því frá byrjun.
Hér er aðeins farið fram á ríkisábyrgð á 10000 kr. rekstrarláni, gegn þeim tryggingum, sem stjórnin metur gildar. Er vissa fyrir því, að félagið getur fengið þetta lán í Landsbanka Íslands, ef ríkisábyrgð fæst á því, þótt bankinn treystist hinsvegar ekki til að lána þá upphæð gegn ábyrgð þessara fátæku manna einna.
Þessi styrkur gæti verið mikils virði til þess að halda fólki í þorpinu. Ríkisábyrgð á rekstrarláni er heldur ekkert einsdæmi. Þannig hefir verið samþ. ríkisábyrgð á miklu hærra láni handa tunnuverksmiðju Akureyrar. Væri því lítið samræmi í því að fella þessa litlu og hættulausu ábyrgðarheimild.
Flatey er eini hafnarstaðurinn í Austur-Barðastrandarsýslu. Fimm hreppar þar eiga enga aðra höfn en Flatey, og því næði þessi hjálp til miklu fleiri en eyjarskeggja einna. Vil ég leggja til; að umr. verði frestað og málinu vísað til sjútvn.