08.12.1933
Neðri deild: 32. fundur, 47. löggjafarþing.
Sjá dálk 278 í D-deild Alþingistíðinda. (1818)

102. mál, samgöngur við Austfirði

Thor Thors:

Ég veit ekki, hvað er mikil alvara bak við þessa þáltill. austanþm., sem nú kemur hér fram í þinglokin. Ég held, að ef full alvara fylgdi till., hefði hún verið borin fram fyrr. Ég vil vekja athygli hv. þm. á því, að Eimskipafél. hefir áður haft fleiri ferðir til og frá Austfjörðum, og hefir tapað allverulega á því. Ég er því ekki viðbúinn að greiða till. þessari játandi atkv. fyrr en málið hefir verið betur upplýst. Ég fæ ekki séð, að það sé Alþ. sæmandi að afgr. þetta mál á síðasta degi þingsins, rannsóknarlaust, svo að ég legg til, að málinu verði vísað til hv. samgmn. og umr. frestað.