08.12.1933
Neðri deild: 29. fundur, 47. löggjafarþing.
Sjá dálk 668 í D-deild Alþingistíðinda. (1916)

53. mál, skilanefnd Síldareinkasölu Íslands

Jakob Möller:

Hv. þm. Seyðf. varar sig ekki á heim verulega mun á verzlunarrekstri einstaklinga, sem bera sjálfir ábyrgð á öllu, sem þeir kaupa og selja, og einkasölu, sem átti aldrei að borga til viðskiptamanna sinna meira en það, sem fékkst fyrir vöruna, að frádregnum kostnaði. Þennan mun tók hv. þm. Seyðf. ekki með.