15.11.1933
Neðri deild: 10. fundur, 47. löggjafarþing.
Sjá dálk 320 í D-deild Alþingistíðinda. (1938)
19. mál, kaup á húsi og lóð góðtemplara í Reykjavík og húsbyggingarstyrkur
Jakob Möller:
Hv. þm. G.-K. sagði, að þau ummæli, sem fellu hjá honum á stúdentafundinum, sem ég gat um, hefðu verið flutt í þann hóp, að þau hefði mátt skoða sem einkamál meðal stúdentabræðra. En það er mesti misskilningur, eins og hv. þm. veit, hví að á fundinum voru ýmsir aðrir en stúdentar, eins og t. d. Jóhannes Jósefsson, og fundurinn var opinber fundur, sem sagt var frá í blöðunum, bæði frá umræðum og ályktunum. Nú var ég á þessum fundi, en svo er ástatt með mitt minni, að ég þori ekki að fullyrða neitt um, að þetta, sem hv. þm. sagði, hafi verið nálægt orðalagi þeirrar ræðu, sem hann hélt, en hitt get ég látið mér skiljast, að þegar menn tala í hita, þá eigi þeir erfitt með að muna, hvað þeir hafi sagt. En ég vil vekja athygli hv. þm. á því, að ef hann fann sig svo mjög meiddan af orðum þessa manns, þá gat hann farið aðra leið en að beita hér í þingsalnum þessum ummælum, til þess að vinna á móti bindindisstarfseminni. Hann gat stefnt þessum manni fyrir ummælin, og það hefði verið miklu sæmilegra heldur en að nota þau hér sem rök gegn nauðsynjamáli þessa félagsskapar, sem hann segist meta mikils, og segir að líklegur sé til að geta gert mikið gagn meðal þjóðarinnar undir forustu annara manna en nú veita honum forstöðu.
Ég á dálítið bágt með að skilja þann mikla mun, sem hv. þm. G.-K. gerir á þessum tveimur mönnum, stórtemplar Sigfúsi Sigurhjartarsyni og hótelstjóra Jóhannesi Jósefssyni. Ég þekki Sigfús Sigurhjartarson sem einstakt prúðmenni og hefi aldrei séð eða heyrt annað til hans, en hinn manninn þekki ég að allt öðru.