02.12.1933
Efri deild: 24. fundur, 47. löggjafarþing.
Sjá dálk 227 í B-deild Alþingistíðinda. (200)
2. mál, kosningar til Alþingis
Magnús Jónsson:
Það eru aðeins örfá orð út af brtt. á þskj. 261. Mér dettur ekki í hug að andmæla því, sem hv. 2. þm. S.-M. sagði, að það er margt framið ljótara á sunnudegi heldur en að greiða atkv., en mér hefir skilizt, að helgidagalöggjöfin byggist á því, að á helgidögum skuli vera ró og friður fyrir þá menn, sem vilja. Hún á ekki að fyrirbyggja t. d., að þeir bæjarbúar, sem vilja, geti farið sér til hressingar út úr bænum, heldur á hún að koma í veg fyrir ónæði og hávaða og annað slíkt, sem leiðir af daglegum störfum. En nú er það svo, að kjördagur er alveg sérstaklega mikill ónæðisdagur hér í bænum. Er óhætt að segja, að Rvík er engan dag ársins í eins miklu uppnámi og þá. Það er eins og þann dag sé einhver sérkennilegur þytur í bænum, sem er aldrei endranær. Það er enginn friður og allt er á tjá og tundri. Það hefir sjaldan verið kosið á sunnudegi hér á landi. Þó var það gert í sumar, og ég viðurkenni, að það var nauðsynlegt, því að sú kosning fór fram um hásláttinn. Þá var það svo, að nauðsyn braut lög, því að kosningin varð að fara fram á sunnudegi, fyrst hún var um sláttinn. Og það er ómögulegt að neita því, að laugardagur á þessum tíma árs er auðvitað einhvers virði, en þetta er þó ekki sá annatími, að það segi verulega til í þjóðarbúskapnum, þó að hann sé tekinn til að vinna þetta nauðsynlega starf í þjóðfélaginu. Þegar menn sjá svona eftir einstökum degi, detta manni í hug útreikningarnir um kóngsbænadaginn. Það er undarlegt, að ríkið skuli hafa orðið að taka nokkurt lán og skuli ekki vera orðið stórríkt, önnur eins fjárhagsleg velmegun og átti að koma, ef sá dagur yrði ekki talinn helgidagur.
En fyrir utan þetta, þá er það, að a. m. k. í öllum stærri kaupstöðum er sunnudagurinn vandræðadagur til kosningar. Það er svo t. d. í Rvík, að á sunnudögum fer mikill sægur manna úr bænum. Þetta er um það leyti árs, sem veðrátta er yfirleitt góð og veitinga- og skemmtistaðir utan bæjarins standa opnir. Það hefir því sýnt sig, að þegar kosið hefir verið á sunnudegi í Rvík, þá hafa verið hreinustu vandræði að halda fólki í bænum og fá það til að kjósa. Þannig var það t. d. í sumar.
Það getur verið, að hér á móti komi aftur hagsmunir kjósenda í sveitum, en mér virtust ekki kosningarnar í sumar bera vott um það. Mér virtist þær illa sóttar, og ekki síður til sveita en kaupstaða, en yfirleitt voru kosningar um allt land með daufasta móti. Hv. 2. þm. S.-M. mætti muna það, að þessi sunnudagskosning var ekki fjörug í hans kjördæmi, þar sem þar kusu svo mjög miklu færri en t. d. við næstsíðustu kosningar. Það sýnir, að þessi dagur hefir ekki dregið neitt ákaflega að. En fyrir hönd Rvíkur og yfirleitt fyrir hönd margra stærri kaupstaða vil ég alveg mótmæla því, að sunnudagur verði valinn fyrir kjördag af hreint praktiskum ástæðum. Ég mun því hiklaust greiða atkv. með þessari brtt.