06.12.1933
Neðri deild: 27. fundur, 47. löggjafarþing.
Sjá dálk 259 í B-deild Alþingistíðinda. (222)
2. mál, kosningar til Alþingis
Frsm. (Thor Thors):
Ég sé enga ástæðu til að fresta atkvgr. lengur en þá til kvöldfundar kl. 9, eða svo. Verði atkvgr. frestað lengur, vinnst ekki tími til að prenta frv. með áorðnum breyt., en það þarf að koma fyrir efri deild á morgun. Virðist fullt útlit fyrir, að málið fari í Sþ. En ef norðanþingmenn eiga að ná heim til sín fyrir jól, verða þinglausnir að fara fram á föstudag.