07.11.1933
Efri deild: 3. fundur, 47. löggjafarþing.
Sjá dálk 335 í B-deild Alþingistíðinda. (346)

6. mál, útflutningsgjald af síld o.fl

Fors.- og fjmrh. (Ásgeir Ásgeirsson):

Á frv. til laga um breyt. á l. um útflutningsgjald af síld, er samþ. var á síðasta þingi, voru þeir formgallar, að stj. lagði lögin ekki fyrir konung, heldur nýtt frv., í fullu samræmi við þingviljann, og eru þessi bráðabirgðalög hér með lögð fyrir Alþingi til staðfestingar.