17.11.1933
Neðri deild: 12. fundur, 47. löggjafarþing.
Sjá dálk 550 í B-deild Alþingistíðinda. (39)

Lausnarbeiðni stjórnarinnar

Fors.- og fjmrh. (Ásgeir Ásgeirsson):

Fyrir tveimur dögum símaði ég til konungs lausnarbeiðni fyrir hönd ríkisstjórnarinnar. Þessi lausnarbeiðni var send í tilefni af því, að þingflokkur framsóknarmanna hefir óskað þess, að stjórnin segði af sér. Í gær barst mér svo hljóðandi skeyti frá konungi: [Sjá aðframan].

Þetta tilkynnist hér með hv. deild.