29.11.1933
Neðri deild: 22. fundur, 47. löggjafarþing.
Sjá dálk 410 í B-deild Alþingistíðinda. (589)
10. mál, Kreppulánasjóður
Jón Sigurðsson:
Landbn. hefir flutt þessa brtt. Frsm. n. er ekki viðstaddur, en þar sem hún er flutt eftir ósk hæstv. fjmrh., þá býst ég við, að hann muni gera nánari grein fyrir henni. Það, sem vakir fyrir með þessari till., er að koma í veg fyrir, að skuldabréfin, sem hér ræðir um, verði á stöðugri hringferð, og að braskað verði með þau. Bréfin eiga ekki að vera neinn nýr gjaldeyrir. Það er ætlazt til, að þau stöðvist hjá þessum stofnunum, sem hér um ræðir. Annars er nokkur hætta á, að svo geti farið, að bréfin verði keypt upp af einum og öðrum, til þess að greiða með þeim skuldir, sem ekki eru á nokkurn hátt viðkomandi þessum kreppulánum, og gæti þá svo farið, að þau lentu öll að lokum hjá ríkissjóði, sem yrði þannig að festa millj. kr. í þessum bréfum, til stórtjóns fyrir skattgreiðendur. Það hefir þótt orka nokkuð tvímælis, hvort menn gætu ekki skilið lögin svo, að sparisjóðir hefðu leyfi til að greiða mönnum innstæður með þessum bréfum. Slíkt nær vitanlega ekki nokkurri átt, og hefir aldrei verið til þess ætlazt. Frv. tekur af öll tvímæli um þessi efni. Ég skal svo ekki fjölyrða frekar um þetta, en vona, að frv. ásamt þessari brtt. fái góðar undirtektir hér í þessari hv. deild.