08.12.1933
Sameinað þing: 12. fundur, 47. löggjafarþing.
Sjá dálk 558 í B-deild Alþingistíðinda. (61)

Afgreiðsla þingmála

1) JakM:

Ég tel, að sjálfsagt hefði verið að slíta þingi, þegar kosningalög væru afgr., en þar sem mér skilst, að forseti hafi ekki farið að þingsköpum með þá kröfu, sem honum barst, þar sem þetta mál var ekki látið koma til umr., eins og þessir hv. þm. áttu rétt til, þá treysti ég mér ekki til að greiða atkv.