08.12.1933
Sameinað þing: 12. fundur, 47. löggjafarþing.
Sjá dálk 559 í B-deild Alþingistíðinda. (68)

Afgreiðsla þingmála

7) BJ:

Ég get ekki greitt atkv. um þetta fyrr en hæstv. forseti hefir svarað þeirri spurningu, hvort ekki megi taka till. okkar fyrir áður en kosningalög eru afgr. Hér stendur sérstaklega á, þar sem 14 þm. hafa sent áskorun um að taka málið fyrir, og þar sem hæstv. forseti hefir brotið þingsköp með því að setja það á eftir málum, sem langar umr. urðu um, þá hefir hann gert sýnilega tilraun til að láta málið sofna. (Forseti (hringir): Þetta er ekki rétt).