08.12.1933
Sameinað þing: 12. fundur, 47. löggjafarþing.
Sjá dálk 560 í B-deild Alþingistíðinda. (80)

Afgreiðsla þingmála

Bergur Jónsson:

Það virðist svo sem einkennileg hræðsla hafi gripið mótstöðumenn þessarar till., að þeir skuli ekki vilja láta hana koma til umr. Mér heyrðist á hv. þm. Borgf., að þetta mál væri svo vaxið, að það gæti ekki náð samþykki þingsins. Hvernig stendur þá á því, að mótstöðumenn málsins standa nú upp hver eftir annan og mótmæla því harðlega, að málið komi til umr., mál, sem er flutt af fleiri þm. en nokkurt annað mál, sem fram hefir komið á þessu þingi?