30.11.1933
Neðri deild: 23. fundur, 47. löggjafarþing.
Sjá dálk 544 í B-deild Alþingistíðinda. (847)

67. mál, Samvinnufélag sjómanna á Stokkseyri

Ólafur Thors:

Ég tel óþarfa að tala langt mál um þessa þáltill; það á við um þetta flest, sem ég tók fram um hið fyrra mál (till. um ríkisábyrgð fyrir samvinnufél. Grím), a. m. k. í grundvallaratriðum.

Ég skrifaði undir nál. með fyrirvara vegna þess, að ég vildi eiga kost á að afla mér upplýsinga um fyrirtækið og áhættu ríkissjóðs í sambandi við það. Ég vænti þess, að ég verði búinn að fá þær fyrir 3. umr. og áskil mér óbundið atkv. þangað til þær liggja fyrir.