19.11.1934
Neðri deild: 40. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 2830 í B-deild Alþingistíðinda. (103)

Afgreiðsla þingmála

Jakob Möller:

Ég vil leyfa mér að vekja athygli hæstv. forseta á því, að þær 7 vikur, sem þingið hefir staðið, hefir fjhn. aðeins getað haldið 8 fundi, sökum þess að deildarfundir eru jafnan haldnir á sama tíma og n. er ætlað að hafa sína fundi. Það er gert ráð fyrir, að n. hafi 3 fundi í viku, en hefir aðeins getað haldið 8 frá því að þing byrjaði.