09.10.1934
Neðri deild: 5. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 868 í B-deild Alþingistíðinda. (1066)

26. mál, vinnumiðlun

Atvmrh. (Haraldur Guðmundsson):

Ég mun ekki hafa mörg orð um frv. þetta. Eins og titill þess ber með sér, þá er ætlunin með því að tryggja það, að vinna sú, sem framkvæmd er í atvinnubótaskyni, komi sem jafnast niður, og að vinna sú, sem unnin er í atvinnubótavinnu. komi að sem mestu gagni.