28.11.1934
Neðri deild: 47. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 2831 í B-deild Alþingistíðinda. (107)

Afgreiðsla þingmála

Héðinn Valdimarsson:

Ég vil í þessu sambandi benda á 4. og 5. mál á dagskrá (frv. um eftirlit með opinberum rekstri og frv.um ferðamannaskrifstofu), sem hafa verið á dagskrá upp undir hálfan mánuð. Vona ég, að hæstv. forseti taki þessi mál fyrir með fyrstu málum á morgun.