08.12.1934
Neðri deild: 54. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 2831 í B-deild Alþingistíðinda. (109)

Afgreiðsla þingmála

Sigurður Kristjánsson:

Mig furðaði á því, er hæstv. forseti las hér upp sem 15. mál á dagskránni frv. um skuldaskilasjóð. Það er kunnugt, að þetta mál hefir verið tafið á öllum sviðum, og að langt er síðan það kom frá n. Ég fæ ekki séð, að sanngjarnt sé að hafa það sem 15. mál á dagskránni. Það eru því tilmæli mín til hæstv. forseta, að málið verði sett á eftir þeim málum, er aðeins á að fara fram atkvgr. um.

Sömuleiðis vænti ég þess, að hæstv. forseti fari svo með frv. um Fiskveiðasjóð, en á því máli hefir einnig orðið mikill dráttur.