24.10.1934
Neðri deild: 18. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 931 í B-deild Alþingistíðinda. (1134)

26. mál, vinnumiðlun

Forseti (JörB):

Það má vera, að hv. þm. þyki þetta torveldara en venja er til. Ég mun eins og ég lýsti yfir, bera upp þá till., að slíta umr. tafarlaust. Verði hún felld mun ég á eftir bera upp till. um að slíta umr., þegar þeir hafa talað, sem nú hafa kvatt sér hljóðs.