10.12.1934
Sameinað þing: 20. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 2833 í B-deild Alþingistíðinda. (120)

Afgreiðsla þingmála

Gísli Guðmundsson:

Ég vildi einnig geta þess, að ég bar fram snemma á þingi þáltill. um eftirlit með veiðarfærum sjómanna, og ætla ég, að hún hafi komið fyrr fram en till. sú, sem hv. þm. G.-K. minntist á. Ég vildi beina þeirri ósk til hæstv. forseta, að hann tæki þessa till. á dagskrá svo fljótt sem unnt væri.