20.11.1934
Neðri deild: 41. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 1452 í B-deild Alþingistíðinda. (1231)

29. mál, markaðs- og verðjöfnunarsjóður

Frsm. (Bergur Jónsson):

Ég þarf ekki að vera langorður, því að hæstv. atvmrh. hefir tekið af mér ómakið, að svara hv. þm. V.-Húnv. — Annars sé ég ekki ástæðu til að ræða við þann hv. þm. í alvöru. Form. Bændafl. á ekki sæti hér í þessari hv. þd., og hér er aðeins viðstaddur annar helmingur Bændafl. í þd., sá hlutinn, sem minni ástæða er til að tala við og venjulega er ekki tekið neitt mark á.