15.12.1934
Efri deild: 62. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 1455 í B-deild Alþingistíðinda. (1260)

29. mál, markaðs- og verðjöfnunarsjóður

Atvmrh. (Haraldur Guðmundsson):

Þetta frv. er nokkur hluti efnis úr bráðabirgðalögum, sem lögð hafa verið fyrir þingið af stj., og hefir orðið samkomulag um það hjá öllum flokkum í Nd., að afgr. frv. í þessu formi, sem það hér liggur fyrir. — Ég held, að það sé engin ástæða til að vísa málinu til n., og vil ég því aðeins gera það að till. minni, að því verði vísað til 2. umr.