18.12.1934
Sameinað þing: 24. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 2834 í B-deild Alþingistíðinda. (130)

Afgreiðsla þingmála

Sigurður Kristjánsson:

Það er nokkuð síðan ég bar fram till. til þál. um þjóðaratkvæði. Ég vil spyrja hæstv. forseta, hvort hann hafi hugsað sér, hvenær hún verði tekin fyrir. Ég sé, að hún er ekki á dagskrá í dag, en nú er langt á þingið liðið, og ég býst ekki við, að margir fundir séu eftir, og ég vildi vita, hvaða forlög till. á að fá.