31.10.1934
Sameinað þing: 10. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 2835 í B-deild Alþingistíðinda. (134)

Þingskrifarapróf

Forseti (JBald):

Út af fyrirspurn hv. 11. landsk. skal ég geta þess, að þetta var tekið til athugunar í þingbyrjun, en af því að eigi hafði verið gerður sá undirbúningur, sem þurfti, var tíminn of naumur til þess að koma prófinu á. Ég þori ekki að fullyrða, hvort forsetarnir allir eru sammála um þetta atriði, en áður en þingi lýkur mun koma fram till. um, að þetta próf verði tekið upp aftur.