10.11.1934
Neðri deild: 33. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 996 í B-deild Alþingistíðinda. (1373)
6. mál, gjald af innlendum tollvörutegundum
Frsm. minni hl. (Jakob Möller):
Það var viðvíkjandi till. frá meiri hl. fjhn. á þskj. 316, sem ég hygg, að sé samin eftir tilmælum frá fjmrn. Mér skilst, að tilgangur þessarar till. sé sá, að fella niður heimild, sem er í gildandi l. um að veita frest á gjaldi af innlendum tollvörutegundum. En það er ósamræmi í þessu, þar sem heimilað er að veita gjaldfrest á erlendum tollvörutegundum. Af þessari ástæðu vildi ég ekki taka þátt í flutningi till., og ég tel ekki rétt að samþ. hana.