15.11.1934
Neðri deild: 37. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 1091 í B-deild Alþingistíðinda. (1443)

12. mál, tekjuskattur og eignarskattur

Forseti (JörB):

Mér hafa borizt 2 skrifl. brtt. Önnur er frá hæstv. fjmrh., við brtt. á þskj. 421. 1. lið, að í stað „4%“ komi: 2%. Hin er frá hv. þm. Snæf. við brtt. á þskj. 441, um að orðin „enda sé hún“ o. s. frv. til enda málsgr., falli niður. Þessar brtt. eru of seint fram komnar og auk þess skrifl., og þarf því tvennskonar afbrigði til þess að þær megi koma hér til umræðu.