30.11.1934
Sameinað þing: 17. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 2836 í B-deild Alþingistíðinda. (147)

Kosningar

Ólafur Thors:

Ég þakka forseta góðar undirtektir, en vildi beina þeirri fyrirspurn til hans, hvort hann sæi sér ekki fært að fresta kosningunni eitthvað lengur. Ég veit, að það er ekki hægt að ná saman flokksfundi á morgun, t. d. verða sumir flokksmenn á fundi utanríkismálanefndar. Vildi ég því spyrja, hvort nokkur bagi væri að fresta kosningunni fram yfir mánudag, því þá er fastur fundardagur í Sjálfstfl.