11.12.1934
Sameinað þing: 21. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 2838 í B-deild Alþingistíðinda. (158)

Kosningar

Þorsteinn Briem:

Það var meining Bændafl., að ef skýr svör fengjust um þetta frá hinum flokkunum, þá mundi flokkurinn bera fram sérstakan lista. Ég óska eftir, að hv. form. Framsfl., sem síðast talaði, gefi skýrari svör við því, hvort hann telur þetta rétt, að fylgja þeirri reglu, sem tíðkazt hefir. Hér er um princip að ræða, og óska ég, að hver flokkur láti það í ljós, hvernig hann lítur á það.