10.12.1934
Sameinað þing: 20. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 2841 í B-deild Alþingistíðinda. (166)

Kosningar

Jónas Jónsson:

Ég vil benda hv. síðasta ræðumanni á, að þetta mál hefir nú staðið fyrir honum og hans ágæta flokki í 10—11 daga. Hv. þm. veit það, að frestað var þessari kosningu hans vegna síðustu dagana í nóvember, vegna þess að hann var ekki við því búinn að skera úr því, hvort Sjálfstfl. skyldi afhenda hv. 10. landsk. annað sæti sitt. Um þetta hefir svo verið þingað allan þennan tíma, og var víst ákvörðun fyrst tekin um það í gær eða fyrradag, að sætið skyldi vera afhent hv. 10. landsk., og er því óþarft að bera þetta undir aðra þm.