24.11.1934
Neðri deild: 45. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 1586 í B-deild Alþingistíðinda. (1661)
31. mál, sala mjólkur og rjóma
Forsrh. (Hermann Jónasson):
Já, það er viðvíkjandi þessu sama hjá hv. þm. Borgf. Ég vil taka það fram út af þessum umr. um þetta atriði frá hans hálfu, að það er rétt, að ágreiningur varð um það í mjólkurn., en mér er óhætt að staðhæfa þetta vegna viðtals míns við n. einmitt út af þessu, og vegna þess að hv. þm. Mýr. gerði sérstaka kröfu um það, að þessu yrði þannig fyrir komið, að mjólkurbúið vildi við una. Og málið er afgert í n. á þeim grundvelli, hvort sem það er nú formlega eða ekki. Þessi ummæli er mér óhætt að láta falla hér.