10.12.1934
Sameinað þing: 20. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 2842 í B-deild Alþingistíðinda. (169)

Kosningar

Forseti (JBald):

Ég skal aðeins segja hv. þm. G.-K. það, að við Alþfl.menn héldum því fram á sínum tíma, að í þessa n. ættu að veljast menn úr öllum þeim flokkum, sem fyrir væru, en þetta getur breytzt, ef flokkarnir verða fleiri en nm. Það er því ekki hægt að taka neina almenna ákvörðun um það, hvað gilda skuli.