18.12.1934
Neðri deild: 63. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 1657 í B-deild Alþingistíðinda. (1714)

31. mál, sala mjólkur og rjóma

Pétur Halldórsson:

Ég skal ekki tala mikið um efni þessa máls. — Ég átti von á, að hæstv. forsrh. svaraði fyrirspurn minni, sem ég beindi til hans við fyrri umr. þessa máls og hann hefir lofað mér upplýsingum um, en það var um innflutning á landbúnaðarvörum. Ég vil spyrja hann, hvort hann hafi ekki aflað sér þeirra upplýsinga nú, og ef svo væri, þá vildi ég óska, að þær kæmu fram.